Þegar sótt er um leyfi fyrir nýbyggingu eða breytingu á þegar byggðu húsi, þarf að sækja um byggingaleyfi. Hér er úrdráttur úr byggingareglugerð þar sem fjallað er um þau gögn sem þarf að skila inn til að fá byggingaleyfi.
Þessi gögn eru,:
Aðaluppdrættir
Byggingauppdrættir
Burðaþolsteikningar
Lagnateikningar (vatn & hiti)
Rafmagnsteikningar.
Að auki þarf staðfestingu á Hönnunarstjóra (samræming teikninga) Byggingastjóra og skrá yfir Iðnmeistara.
2.4. KAFLI Byggingarleyfið. 2.4.1. gr.
Umsókn um byggingarleyfi. Umsókn um byggingarleyfi skal vera skrifleg og send hlutaðeigandi leyfisveitanda.
Á fyrra stigi umsóknar, þ.e. vegna byggingaráforma, skal skila inn gögnum sem tilgreind eru í 2. mgr.
Á seinna stigi, þ.e. vegna endanlegrar afgreiðslu byggingarleyfis, skal skila inn gögnum sem tilgreind eru í 3. mgr.
(2.mgr) Heimilt er að samþykkja byggingaráform og gefa út byggingarleyfi samtímis hafi öllum gögnum verið skilað til leyfisveitanda. Gögn vegna samþykktar byggingaráforma eru eftirtalin:
a. Aðaluppdrættir ásamt byggingarlýsingu á pappír eða á rafrænu formi samkvæmt ákvörðun leyfisveitanda. Sé bygging eða starfsemi sérstaks eðlis getur leyfisveitandi krafist þess að greinargerð fylgi umsókn. Ennfremur skal fylgja mæli- og hæðarblað er sýnir götunafn og númer, afstöðu húss og lóðar, hæðarlegu miðað við götu, eftir því sem við á og hnitaskrá og landnúmer. Leyfisveitandi ákveður hvort og að hvaða leyti leggja þarf fram aðaluppdrætti vegna breytinga á þegar byggðum mannvirkjum.
b. Tilkynning um hönnunarstjóra mannvirkisins.
c. Samþykki meðeigenda eða annarra aðila eftir atvikum.
d. Önnur gögn sem leyfisveitandi telur nauðsynleg vegna afgreiðslu umsóknar, s.s. umsögn [Minjastofnunar Íslands]1) , Vinnueftirlits ríkisins, slökkviliðs og annarra eftirlitsaðila og gögn sem sýna fram á eignarheimildir, réttindi hönnuða o.fl.
e. Staðfesting skipulagsfulltrúa viðkomandi sveitarfélags ef mannvirki er á varnar- og öryggissvæði á því að fyrirhuguð framkvæmd sé í samræmi við skipulagsáætlanir á svæðinu.
f. Skráningartafla vegna allra nýrra mannvirkja svo og vegna breytinga á stærð eða breytinga á eignarmörkum eldri mannvirkja.
(3.mgr) Vegna útgáfu byggingarleyfis ber, til viðbótar gögnum skv. 2. mgr., að leggja fram eftirfarandi gögn:
a. Séruppdrætti og deiliuppdrætti ásamt nauðsynlegum fylgiskjölum.
b. Undirritaða yfirlýsingu byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd.
c. Undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu iðnmeistara sem ábyrgð bera á einstökum verkþáttum.
d. Yfirlit hönnunarstjóra um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar.
e. Yfirlit hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða og áritun hans til staðfestingar á því að um tæmandi yfirlit sé að ræða.
2.3.5. gr. Minniháttar framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi.
Eftirfarandi framkvæmdir og breytingar eru undanþegnar byggingarleyfi enda séu þær í samræmi við deiliskipulag:
a. Framkvæmdir innanhúss í íbúðarhúsnæði.
[Allt viðhald innanhúss í íbúðarhúsnæði, s.s. endurnýjun innréttinga, breytingar eða endurnýjun á léttum innveggjum, viðhald lagnabúnaðar innan íbúðar o.þ.h. Minniháttar breytingar á burðarveggjum, eldvarnarveggjum, votrými eða eldhúsi innan íbúðar eru heimilar án byggingarleyfis enda sé leyfisveitanda tilkynnt um framkvæmdir áður en þær hefjast.] 1)
b. Framkvæmdir innanhúss í atvinnuhúsnæði.
Allt minniháttar viðhald innanhúss í atvinnuhúsnæði, s.s. endurnýjun innréttinga, viðhald lagnabúnaðar innanhúss o.þ.h. [Einnig endurnýjun léttra innveggja, þó ekki burðarveggja og eldvarnarveggja, enda sé leyfisveitanda tilkynnt um framkvæmdir áður en þær hefjast [...]1)]
2) Ekki má flytja til votrými eða eldhús, né breyta burðarvirki, nema að fengnu byggingarleyfi.
c. Framkvæmdir utanhúss.
[Viðhald bygginga að utan, s.s. endurnýjun þakklæðningar, þakkanta, veggklæðninga og glugga þegar notað er eins eða sambærilegt efni og frágangur er þannig að útlit byggingar sé ekki breytt eða breyting óveruleg. Einnig nýklæðning þegar byggðra bygginga og minniháttar breytingar á burðarvirki, enda sé leyfisveitanda tilkynnt um framkvæmdir áður en þær hefjast.] 1)
d. Móttökuloftnet.
Uppsetning móttökudisks, allt að 1,2 m að þvermáli, vegna móttöku útsendinga útvarps eða sjónvarps eða móttökuloftnets, [...] 2) að því tilskildu að slíkt sé ekki óheimilt samkvæmt skilmálum skipulags. [...] 2)
e. Framkvæmdir á lóð.
Allt eðlilegt viðhald lóðar, girðinga, bílastæða og innkeyrslu. Gerð palla og annar frágangur á eða við jarðvegsyfirborð, enda rísi pallur ekki hærra en 0,3 m frá því yfirborði sem fyrir var. Pallur úr brennanlegu efni má þó ekki vera nær lóðarmörkum aðliggjandi lóðar en 1,0 m.
Ekki er heimilt að breyta hæð lóðar á lóðarmörkum án samþykkis leyfisveitanda og samþykkis lóðarhafa aðliggjandi lóðar. Þá er ekki heimilt að breyta hæð lóðar innan hennar þannig að það valdi skaða á lóðum nágranna eða skerði aðra hagsmuni nágranna, t.d. vegna útsýnis.
f. Skjólveggir og girðingar á lóð.
Skjólveggir og girðingar sem eru allt að 1,8 m að hæð og eru ekki nær lóðarmörkum en 1,8 m. Ennfremur girðingar eða skjólveggir sem eru nær lóðarmörkum en 1,8 m og eru ekki hærri en sem nemur fjarlægðinni að lóðarmörkum. [Einnig allt að 2,0 m langir og 2,5 m háir skjólveggir sem eru áfastir við hús og í a.m.k. 1,8 m fjarlægð frá lóðarmörkum.]
2) Lóðarhöfum samliggjandi lóða er heimilt án byggingarleyfis að reisa girðingu eða skjólvegg allt að 1,8 m að hæð á lóðarmörkum, enda leggi þeir fram hjá leyfisveitanda undirritað samkomulag þeirra um framkvæmdina. Hámarkshæð girðingar/skjólveggjar í [2.-4. málsl.] 2) miðast við jarðvegshæð við girðingu/vegg eða jarðvegshæð lóðar á lóðarmörkum ef hæð jarðvegs þar er meiri en jarðvegshæð á lóð við vegginn.
g. Smáhýsi á lóð.
[Smáhýsi úr léttum byggingarefnum til geymslu garðáhalda o.þ.h. á lóð utan byggingarreits þegar eftirfarandi kröfur eru uppfylltar, enda sé slík bygging ekki óheimil samkvæmt gildandi deiliskipulagi:
1. Flatarmál smáhýsis er að hámarki 15 m².
2. Fjarlægð milli smáhýsa innbyrðis, frá glugga eða hurð húss og frá útvegg timburhúss er a.m.k. 3,0 m eða sýnt er fram á að brunamótstaða veggja smáhýsis og aðliggjandi húss sé þannig að fullnægjandi brunahólfun náist á milli húsanna.
3. Veggur smáhýsis sem snýr að lóðarmörkum og er nær lóðarmörkum en 3,0 m er glugga- og hurðalaus.
4. Mesta hæð þaks á smáhýsi er 2,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs.
5. Ef smáhýsi er nær lóðarmörkum en 3,0 m skal liggja fyrir skriflegt samþykki lóðarhafa þeirrar nágrannalóðar og skal það lagt fram hjá byggingarfulltrúa.] 1) [
h. Viðbyggingar.
Ein viðbygging við mannvirki þar sem eftirfarandi kröfur eru uppfylltar:
1. Viðbyggingin er innan byggingarreits.
2. Flatarmál viðbyggingar er að hámarki 40 m².
3. Viðbyggingin er á einni hæð.
Tilkynna skal fyrirhugaða framkvæmd til leyfisveitanda.
i. Lítil hús á lóð.
Eitt lítið hús, s.s. gestahús, bílskúr (viðbygging eða stakstæður), vinnustofa o.þ.h., á lóð þar sem þegar er til staðar íbúðar- eða frístundahús, enda sé um að ræða hús sem er hluti þeirrar eignar sem fyrir er á lóðinni og eftirfarandi kröfur eru uppfylltar:
1. Húsið er innan byggingarreits.
2. Flatarmál húss er að hámarki 40 m².
3. Brunamótstaða veggja er slík að fullnægjandi brunahólfun náist á milli húsa.
4. Mesta hæð þaks húss er 3,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs. Tilkynna skal fyrirhugaða framkvæmd til leyfisveitanda.
j. Smáhýsi veitna.
Smádreifistöðvar fyrir raforkudreifingu, dæluhús hita-, vatns- og fráveitu og önnur lítil hús veitukerfa ef eftirfarandi kröfur eru uppfylltar: 1. Flatarmál húss er að hámarki 15 m². 2. Mesta hæð þaks er 2,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs. Tilkynna skal fyrirhugaða framkvæmd til leyfisveitanda